Andri Valsson
Verkfræðingur og verkefnastjóri
Viðskiptavinaánægja
Skil á tíma og innan kostnaðaráætlunar
Mannauður
Gæði & öryggi
Tæknileg úrvinnsla gagna
Samræming og rýni hönnunargagna
Áætlanir, eftirlit og eftirfylgni
Andri útskrifaðist úr Háskóla Íslands árið 2007 sem Umhverfis- og byggingaverkfræðingur.
Hann hóf störf hjá okkur árið 2020 en hafði áður starfað hjá Munck á Íslandi, LNS Sögu og Verkís bæði sem verkstjórnandi og tæknimaður.
Hann hefur starfað við ólik verkefni hjá okkur en einna stærsta verkefnið var Íþróttamiðstöð Fram í Úlfársdal. Hann er því hokinn af reynslu og ákaflega vinsæll samstarfsmaður.
Andri er þekktur fyrir góða sveiflu á golfvellinum og ómissandi hlekkur í gleðikeðju GG.