Nýr framkvæmdastjóri í hælum!
Brynhildur S. Björnsdóttir tók nýverið við framkvæmdastjórn GG verk og hefur það vakið athygli í þessum bransa, sem hefur löngum verið mjög karllægur. Við erum stoltir af því að hafa fengið hana til liðs við okkur og hlökkum til að starfa með henni. Viðskiptablaðið birti af þessu tilefni viðtal við hana í dag.