Starfsánægja hjá GG Verk aldrei meiri!
Eitt af okkar mikilvægustu gæðamarkmiðum er starfsánægja - enda er hún forsenda allra gæða.
Árlega mælum við öll gæðamarkmiðin okkar en þau eru:
- Að veita starfsfólki gott vinnuumhverfi
- Að styðja frumkvæði og efla fagþekkingu starfsfólks
- Skil á þjónustu á umsömdum tíma
- Að gæði og þjónusta uppfylli væntingar viðskiptavina
- Að fyllsta öryggis sé gætt
- Að stuðla að stöðugum endurbótum
Þó að við tökum öll markmiðin okkar alvarlega þá var starfsánægjan sett á oddinn í ár. Þess vegna var gaman að uppskera mestu starfsánægju hjá okkur frá upphafi mælinga eða 4,6 á fimm punkta Likert kvarða. Það þýðir að 92% af okkar starfsmönnum eru annaðhvort frekar eða mjög ánægðir í vinnunni.
Richard Branson veit nefnilega hvað hann syngur...