Íbúðir fyrir 50+ í hjarta Mosfellsbæjar!
Við höfum nú hafist handa við uppbyggingu á gamla kaupfélagsreitnum í Mosfellsbæ eða Bjarkarholti 8-20, í hjarta Mosfellsbæjar - þar sem flest þjónusta er í göngufæri.
Þar munu rísa fjögur fjölbýlishús á 3-5 hæðum eða um 65 íbúðir fyrir 50 ára og eldri.
Arkitektar reitsins eru ASK arkitektar en Landhönnun sér um landslagið en lögð verður rík áhersla á að stuðla að grænni ásýnd umhverfisins. Sjá umfjöllun hér í Bæjarblaðinu Mosfellingi.
Sala er ekki hafin á íbúðunum en áhugasamir geta skráð sig á lista yfir áhugasama - með því að senda póst á ggverk@ggverk.is. Áætluð verklok eru árið 2020 en skilum á íbúðum verða þó áfangaskipt fram að því.