Dvergsreiturinn tilnefndur til Hönnunarverðlauna Íslands!

Dvergsreitur eftir arkitektastofurnar KRADS og TRÍPÓLÍ, ásamt Landmótun, er tilnefndur til Hönnunarverðlauna Íslands árið 2023.

En árið 2017 unnu arkitektastofurnar 1. verðlaun í hönnunarsamkeppni, fyrir GG Verk, um nýja blandaða byggð á gamla Dvergsreitnum. Einhver töf varð á framkvæmdum vegna skipulagsmála en framkvæmdum lauk nýverið.

Þess má geta að Hafnarfjarðarbær veitti GG nýlega viðurkenningu fyrir vandaðan lóðarfrágang á reitnum og mun það vera í 1. sinn sem Bærinn veitir verktökum þá viðurkenningu.

Enn eru örfáar íbúðir og atvinnurými til sölu á reitnum en Miklaborg og Ás Fasteignasala sjá um söluna.

Sjá umfjöllun um tilnefninguna hjá Hönnunarmiðstöðinni:

Dvergsreitur er blönduð byggð í hjarta Hafnarfjarðar sem nýverið var lokið við byggingu á. Reiturinn er höfundum sínum, verkkaupa og sveitarfélaginu, til mikils sóma og þar er þétting byggðar vel heppnuð. Í verkefninu er fallega unnið með umfang og form nærliggjandi húsa og haganlega sköpuð rými eru á milli bygginganna, þrátt fyrir mikinn þéttleika. Efnisval er nútímalegt, en vísar í nærliggjandi hús og minnkar sýnilega stærðarskölun með markvissri notkun breytileika í efnisvali. Þegar betur er að gáð er leikur að formum húsanna og jafnvel árekstur, sem gefur þeim kæruleysislegt, ef ekki hreinlega gamansamt yfirbragð.

Áður stóðu verksmiðjuhús Dvergsins á reitnum. Lögð var áhersla á að nýbyggingar á lóðinni væru hannaðar með þeim hætti að þær féllu sem best að fíngerðara útliti nærliggjandi byggðar. Markmið hönnunarinnar var að skapa eins konar þorpsanda, ramma fyrir hlýlegt mannlíf, sem bæði íbúar sem hafa eigið viðverusvæði í skjólgóðum húsagarði fjær götunum og gestir sem sækja verslun og þjónustu á jarðhæðunum, geta notið.