GG leitar að gæða- og öryggisstjóra
GG var annar byggingaverktakinn á landinu til að öðlast alþjóðlega ISO9001 gæðavottun árið 2015, sem hefur verið staðfest árlega síðan, í kjölfar ítarlegrar ytri skoðunar gæðavottunaraðila.
GG leitar nú að nýjum gæða- og öryggisstjóra og sér Intellecta um ráðninguna.
Umsóknarfrestur er til 10. júní en umsóknir verða metnar jafnóðum.