Sveinn og Bjarni bætast í stjórnendahóp GG!

Sveinn Ragnarsson, húsasmíðameistari og byggingatæknifræðingur og Bjarni Bragason, húsa- og húsgagnasmiður bætast nú í stjórnendahóp GG Verk. Sveinn verður verkefnastjóri GG við uppbyggingu á Íþróttamiðstöð FRAM í Úlfársdal og Bjarni bætist þar í hóp verkstjóra.

Sveinn Ragnarsson (tv) og Bjarni Bragason (th).

Sveinn Ragnarsson (tv) og Bjarni Bragason (th).

Báðir hafa þeir umtalsverða reynslu í byggingariðnaði á sviði verk- og verkefnastýringar, eftirlits, áætlanagerðar, útboðsgerðar og framkvæmdaráðgjafar. Byggingaverkefnin sem þeir hafa komið að eru fjölmörg og má helst nefna, íbúða- og skólabyggingar, hótel, atvinnuhúsnæði, sjúkrahús, virkjanir- og vegagerð.

Við bjóðum þá hjartanlega velkomna til starfa!