Tæknimenn og verkstjórar óskast

Vegna traustrar verkefnastöðu óskar GG Verk eftir að ráða fleiri öfluga verkstjóra og tæknimenn í lykilstjórnendateymi byggingaframkvæmda.

GG Verk er 18 ára gamalt byggingafyrirtæki sem er með alþjóðlega ISO9001 gæðavottun og háa starfsánægju. Hjá okkur starfar öflugur hópur fólks við að byggja vönduð mannvirki innan tilskilins tímaramma, af framúrskarandi metnaði og umhyggju fyrir fólki og umhverfi. Félagið sækist eftir umsækjendum sem vilja vera hluti af árangursdrifnu teymi og móta framtíðina með okkur í byggingariðnaðinum

Hjá okkur starfa um 120 manns en við leggjum mikið upp úr því að laða til okkar fólk sem vill vaxa í starfi, vinnur sjálfstætt, hefur góða tækni- og fagþekkingu, er árangursdrifið en umfram allt setur fólk í fyrsta sæti.

Intellecta sér um ráðningu tæknimanna en hægt er að senda umsókn og ferilskrá fyrir verkstjórastöðu beint á atvinna@ggverk.is.

Hér má sjá augýsingu Intellecta fyrir tæknimenn.

Og hér auglýsingu um verkstjóra en GG ræður beint í þær stöður. Sendið umsókn og ferilskrá á atvinna@ggverk.is eða á Alfreð hér.